Þriðjudaginn 28. janúar milli 15-16 verður haldinn veffundur um verkefnið og samnefnt námskeið „Líf sem er lífsins virði: að hugsa um stjórnendur og kennara.“
Líf sem er lífsins virði er ný nálgun í að leita svara við spurningum um tilgang lífsins og hvað það er sem gerir líf okkar merkingarbært. Nýlega lauk 9 mánðaða tilraunakennslu námskeiðsins sem 12 kennarar og skólastjórnendur alls staðar að af landinu tóku þátt í. Á fundinum verður farið yfir aðferðafræðina sem Líf sem er lífsins virði byggir á og hvernig sú aðferðafræði getur nýst í persónulegu lífi og faglegu starfi. Tveir þátttakendur munu einnig segja stuttlega frá reynslu sinni af þátttöku.
Skráðu þig til þátttöku hér:
