Verkfæri til að efla seiglu ungs fólks nú aðgengileg á vefnum

Á vefnum www.empoweryouth.is er nú hægt að nálgast EmpowerYOUth námsefnið og verkfærin sem því fylgja: EmpowerYOUth-spjöldin, Kassana níu og myndbönd fyrir foreldra. Vefurinn er ætlaður ungmennum, foreldrum og öllum sem starfa með ungu fólki. Við hvetjum fagfólk sérstaklega til að skrá sig inn og skoða námsefnið.

Forsíða vefsins empoweryouth.is
Forsíða vefsins empoweryouth.is.

Hvað er EmpowerYOUth?

EmpowerYOUth er námsefni fyrir ungmenni á aldrinum 14–18 ára. Það hjálpar þeim að skilja tilfinningar sínar betur, takast á við streitu, styrkja tengsl og bregðast betur við áskorunum lífsins. Seigla er kjarninn í efninu. Hún snýst ekki um að forðast erfiðleika, heldur um að byggja upp færni, bjargráð og stuðning sem hjálpar okkur að ná jafnvægi á ný þegar á reynir.

Námsefnið er að jafnaði kennt í átta tímum. Í fyrsta tímanum kynnast ungmennin efninu og velja sjálf þau viðfangsefni sem þau vilja helst skoða. Í öðrum og þriðja tíma er unnið með gildi, styrkleika og tilgang. Tímarnir sem eftir eru fjalla um það sem hópurinn valdi, til dæmis kvíða, skólastreitu, einmanaleika, vináttu, fjölskyldu, einelti, líkamsímynd, samfélagsmiðla, geðheilsu, kyn og kynverund eða peninga og fjármálalæsi. Kennslan byggir á samtali, opnum spurningum og virkri þátttöku fremur en hefðbundinni kennslu.

Hvaðan er námsefnið sprottið?

Námsefnið á rætur að rekja til vinnu hjá Pieta House á Írlandi árið 2017. Þar tóku ungmenni þátt í rýnihópum og sögðu frá því hvað ylli þeim streitu og á hvaða sviðum þau vildu meiri stuðning. Efnið var síðan þróað áfram í tveimur Erasmus+ verkefnum, BUILD og I-YOU, og hefur BUILD námsefnið verið kennt í Hafnarfirði frá árinu 2022.

Í EmpowerYOUth var námsefnið endurskoðað og nýjum viðfangsefnum bætt við. Það var síðan tilraunakennt á Íslandi, í Búlgaríu og á Ítalíu, hér á landi í fimm skólum í Hafnarfirði og þremur í Kópavogi. Fyrstu niðurstöður úr mati á seiglu þátttakenda má lesa hér.

Hvaða hæfni er verið að efla?

Námsefnið, spjöldin, Kassarnir níu og myndböndin þjóna öll sama tilgangi: að efla seiglu og vellíðan ungs fólks. Unnið er með tilfinningalæsi og sjálfsvitund, tilfinningastjórnun og bjargráð, tengsl og samskipti og færni til að leita sér aðstoðar. Það er gert eftir fimm meginleiðum:

  • Gildi og tilgangur. Að skoða hvað skiptir mann máli og hvað gefur lífinu stefnu.
  • Kassarnir níu. Að skoða ólík svið lífsins og hvernig þau geta veitt jafnvægi og stuðning.
  • Aðferðir úr hugrænni atferlismeðferð (HAM). Að skoða tengsl hugsana, tilfinninga og hegðunar.
  • Aðferðir úr díalektískri atferlismeðferð (DAM). Að efla tilfinningastjórnun, núvitund, streitustjórnun og samskiptafærni.
  • Að leita sér aðstoðar. Að átta sig á því hvenær þörf er á stuðningi og hvernig má sækja hann.

Verkfærin á vefnum

EmpowerYOUth-spjöldin eru rúmlega hundrað rafræn spjöld um tólf viðfangsefni. Á hverju spjaldi er stutt hugleiðing og einföld æfing sem hægt er að prófa strax. Spjöldin eru opin öllum og þau sem skrá sig inn geta vistað eigin hugleiðingar við hvert spjald.

EmpowerYOUth-spjöldin: tólf viðfangsefni á vefnum
Spjöldunum er raðað eftir viðfangsefnum.
Dæmi um EmpowerYOUth-spjald með hugleiðingu og æfingu
Á hverju spjaldi er hugleiðing og æfing.

Kassarnir níu eru einfalt verkfæri til ígrundunar. Þeir sýna níu svið í lífi ungmennis: gildi og tilgang, fjölskyldu, vini, sambönd, nám, tómstundir, daglega ábyrgð, líkamlega heilsu og geðheilsu. Grunnhugmyndin er jafnvægi. Þegar eitt svið er erfitt geta önnur veitt stuðning og stöðugleika. Kassarnir níu eru hvorki próf né greiningartæki, heldur leið til að koma auga á styrkleika og það sem gæti þurft meiri athygli.

Kassarnir níu: Vinir, Fjölskylda, Sambönd, Líkamleg heilsa, Geðheilsa, Gildi og tilgangur, Tómstundir, Nám og Dagleg ábyrgð
Kassarnir níu.

Myndbönd fyrir foreldra og forráðamenn eru fjögur og hvert þeirra um tíu mínútur. Þau fjalla um unglingsárin, um EmpowerYOUth, um leiðir til að styðja við vellíðan heima og um hvernig nýta má vefinn og verkfærin þar.

Hverjir geta nýtt sér vefinn?

  • Kennarar, námsráðgjafar og tómstundafræðingar fá með skráningu aðgang að öllu námsefninu, kennsluáætlunum og efni fyrir leiðbeinendur. Efnið má kenna í heild eða nýta einstök viðfangsefni, og spjöldin henta vel til að kynna viðfangsefni eða opna umræðu í hópi.
  • Sálfræðingar og félagsráðgjafar geta notað spjöldin og Kassana níu í samtölum við ungmenni, til dæmis sem upphaf að samtali eða til að gefa ungmenni eitthvað til að velta fyrir sér á milli viðtala.
  • Ungmenni geta skoðað spjöldin á eigin vegum, valið það sem þeim er efst í huga og notað Kassana níu til að skoða stöðuna á ólíkum sviðum lífsins.
  • Foreldrar og forráðamenn geta horft á myndböndin og notað spjöldin og Kassana níu sem mildan upphafspunkt að samtali heima.
Síðan fyrir foreldra og forráðamenn á empoweryouth.is
Síðan fyrir foreldra og forráðamenn.

Vefurinn er ætlaður til að styðja við samtöl, ekki koma í stað þeirra. Hann kemur ekki í stað tengsla, stuðnings frá skóla eða faglegrar aðstoðar þegar hennar er þörf.

Skráðu þig inn og skoðaðu

Enn er verið að lagfæra íslenska, ítalska og búlgarska hluta vefsins og því getur hluti textans enn birst á ensku. Við hvetjum engu að síður allt fagfólk sem vinnur með ungu fólki til að skrá sig inn á www.empoweryouth.is, undir „Nýskráning fyrir leiðbeinendur“, og skoða námsefnið.

EmpowerYOUth er Erasmus+ verkefni (nr. 2024-2-IS01-KA220-YOU-000285290). Að því standa Píeta samtökin og NORTH Consulting á Íslandi, National School of Management í Búlgaríu og Centro per lo Sviluppo Creativo Danilo Dolci á Ítalíu.


Athugasemdir

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *