Hvernig getur skólinn stutt betur við geðheilsu og vellíðan barna og ungmenna?

NORTH Consulting tekur þátt í Erasmus+ verkefninu School Mental Health ásamt samstarfsaðilum á Spáni, Kýpur, í Litháen og Rúmeníu. Verkefninu er stýrt af Fundación Santa María la Real á Spáni.

Markmiðið er að efla geðheilsu og tilfinningalega vellíðan barna og ungmenna á aldrinum 12–18 ára, með sérstakri áherslu á þau sem eru í viðkvæmri stöðu.

Í verkefninu:
– verður gerð rannsókn í löndunum fimm. Rætt verður við fagfólk og ungmenni og lögð könnun fyrir nemendur.
– eru góðar starfsvenjur og stuðningsúrræði í hverju landi kortlögð.
– er þróað námskeið í átta hlutum fyrir kennara, námsráðgjafa og annað fagfólk sem starfar með ungu fólki. NORTH leiðir þá vinnu.
– verður opnaður rafrænn vettvangur með námskeiðinu, stuttum myndböndum fyrir ungt fólk og öðru stuðningsefni.
– verður efnt til vitundarvakningar og kynningarviðburða í hverju landi.

Í námskeiðinu er fjallað um hvernig má greina vanlíðan, hlusta á ungt fólk, bregðast við einelti, vísa á rétta aðstoð og bregðast við sjálfsskaða og sjálfsvígshugsunum.

Við segjum fljótlega frá helstu niðurstöðum rannsóknarinnar á Íslandi. Fylgist líka með verkefninu á Facebook og fáið fréttir af námskeiðinu, vefnum og nýju efni: facebook.com/ProjectSMH

Verkefnið er samfjármagnað af Evrópusambandinu (Erasmus+ verkefni nr. 2025-1-ES01-KA220-SCH-000363560)
#SchoolMentalHealth #ErasmusPlus #geðheilsa #menntun

The gallery was not found!

Athugasemdir

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *