
Niðurstöður rannsóknar Erasmus+ verkefnisins School Mental Health liggja nú fyrir. NORTH Consulting tekur þátt í verkefninu ásamt samstarfsaðilum á Spáni, Kýpur, í Litháen og Rúmeníu. Rannsóknin var gerð í löndunum fimm í janúar- mars árið 2026 og skoðaði geðheilsu og vellíðan nemenda á aldrinum 12–18 ára. Hún er grunnurinn að námskeiði fyrir fagfólk í skólum, sem NORTH leiðir, og nýjum rafrænum vettvangi verkefnisins.
Hvernig var rannsóknin gerð á Íslandi?
58 nemendur á aldrinum 16–18 ára svöruðu könnun. Þá voru tekin níu viðtöl við tíu sérfræðinga: námsráðgjafa, skólaráðgjafa, sálfræðinga, kennara, sérfræðinga í menntamálum og atferlisþerapista. Í hinum löndunum voru einnig haldnir rýnihópar með yngri nemendum, en það var ekki gert hér á landi.
Góð vellíðan í samanburði
71% íslensku nemendanna meta geðheilsu sína góða eða mjög góða. Meðalskor á WHO-5 vellíðunarkvarðanum var 16,5 af 25, vel yfir viðmiðunarmörkunum 13. Á Kýpur mældist vellíðan enn meiri. Í Rúmeníu, Litháen og á Spáni var hins vegar meira en helmingur nemenda með litla vellíðan. Í Rúmeníu var bilið mest milli þess hvernig nemendur meta eigin geðheilsu og þess sem kvarðinn sýnir. Þar telja 60% geðheilsu sína góða, en aðeins 38% mælast með góða vellíðan.
Samskipti vega þyngra en einkunnir
Íslensku nemendurnir nefna oftast framkomu kennara (29%) og andrúmsloftið í nemendahópnum (22%) sem það sem mest áhrif hefur á líðan þeirra. Aðeins 12% nefna þrýsting vegna einkunna. Í hinum löndunum er sá þrýstingur mun meira áberandi: 68% á Kýpur, 45% á Spáni, 36% í Rúmeníu og 29% í Litháen. Í skýrslunni er Ísland talið hafa heildstæðara kerfi en hin löndin, þar sem vellíðan er betur fléttuð inn í daglegt skólastarf.
Hvað sér fagfólk?
Sérfræðingarnir lýsa erfiðleikum ungmenna við að þekkja og stjórna tilfinningum sínum, kvíða og tilfinningalegri þreytu. Snjallsímanotkun var nefnd sem áhættuþáttur í átta af níu viðtölum. Góður hópbragur og jákvæð tengsl nemenda og kennara eru hins vegar talin verndandi. Sérstaklega viðkvæmir hópar eru nemendur með sérþarfir, börn fráskilinna foreldra og börn á fyrstu árum unglingsáranna. Fagfólkið leggur mesta áherslu á meira samstarf við foreldra, fleiri sérfræðinga í skólum og meiri þjálfun fyrir kennara.
Það sem nemendur biðja um
Stuðningur er til staðar en lítið nýttur. 26% hafa nýtt sér sálrænan stuðning í skólanum, en 27% vita ekki hvort hann er í boði. Nemendur vilja meira rými til að ræða líðan sína (55%) og leiðsögn um að takast á við streitu og kvíða (52%). Þeir vilja líka að kennarar fái þjálfun í að styðja við vellíðan (47%). Á stafrænu sviðinu vilja 76% geta leitað til fagfólks vegna vandamála á netinu.
Myndin er ekki öll jákvæð
Úrtakið er lítið og niðurstöðurnar ber að lesa sem vísbendingu. Landskannanir sýna að hlutfall nemenda sem telja geðheilsu sína góða lækkar úr 87% í 6. bekk í 68% í 10. bekk. Þar kemur líka fram mikill kynjamunur: 84% drengja í 10. bekk telja geðheilsu sína góða, en aðeins 57% stúlkna. Í 6. bekk segjast 53% nemenda eiga fullorðinn trúnaðarmann í skólanum, en 41% í 10. bekk (Menntavísindastofnun HÍ, 2025). Í framhaldsskóla er hlutfallið 35% (Menntavísindastofnun HÍ, 2023).
Næstu skref
Niðurstöðurnar eru nú nýttar í námskeið í átta hlutum fyrir fagfólk sem starfar með börnum og ungmennum. Námskeiðið verður prófað í öllum samstarfslöndunum og gert aðgengilegt á rafrænum vettvangi verkefnisins.
Verkefnið School Mental Health (2025-1-ES01-KA220-SCH-000363560) er samfjármagnað af Evrópusambandinu. Skoðanir sem fram koma eru samstarfsaðila einna og endurspegla ekki endilega afstöðu Evrópusambandsins .

Leave a Reply