

EmpowerYOUth er Erasmus+ verkefni (nr. 2024-2-IS01-KA220-YOU-000285290) sem byggir á tveimur eldri verkefnum, BUILD námsefninu sem hefur verið kennt í Hafnarfirði frá árinu 2022 og appinu I.YOU . Námsefnið var endurskoðað og nýjum námseiningum bætt við. Átta vikna námsefni um seiglu var síðan tilraunakennt með ungu fólki á aldrinum 14-18 ára Íslandi, í Búlgaríu og á Ítalíu. Á Íslandi var það tilraunakennt í fimm skólum í Hafnarfirði og þremur skólum í Kópavogi. Einnig voru þróuð rafræn spjöld með bjargráðum varðandi ólíkar áskoranir unglingsáranna sem ungmenni, foreldra og þeir sem starfa með ungmennum geta notfært sér.
Þátttakendur svöruðu spurningalista um seiglu fyrir og eftir námsefnið. Hann mældi fjóra þætti: tengsl, sjálfstraust, bjargráð og tengsl við skólann. Alls svöruðu 413 fyrir námsefnið og 405 eftir það.

Helstu niðurstöður tilraunakennslu í þátttökulöndum
- Meðaltal seiglu hækkaði úr 2,76 í 2,86, eða um 3,6%.
- Allir fjórir þættirnir hækkuðu: tengsl um 2,3%, sjálfstraust um 2,5%, bjargráð um 4,4% og tengsl við skólann um 4,2%.
- Framfarir mældust í öllum löndunum þremur. Á Ítalíu hækkaði meðaltalið um 9,1%, í Búlgaríu um 6,2% og á Íslandi um 1,1%.
- Íslenskir þátttakendur byrjuðu með hæsta seigluna, sem getur skýrt hluta af minni hlutfallslegri hækkun. Mest breyting varð á Íslandi í tengslum við skólann (4,9%).
- Marktækur munur reyndist á þremur þáttum: tengslum, bjargráðum og tengslum við skólann. Eftir leiðréttingu fyrir mörgum prófum (Bonferroni) stóðu tengsl við skólann ein eftir.

Nokkur atriði sem hækkuðu mest
- „Ég næ mér fljótt eftir áföll“ (+8,85%)
- „Ég upplifi tengsl við skólann minn“ (+8,26%)
- „Ég kann að bregðast við erfiðum tilfinningum“ (+6,93%)
- „Mér finnst ég örugg/ur í skólanum“ (+6,92%)
- „Það er fólk í skólanum sem er annt um mig“ (+6,72%)
- „Mér finnst ég elskuð/elskaður“ (+6,6%)
Hvernig á að túlka niðurstöðurnar
Svörin voru nafnlaus og því var ekki hægt að para saman svör sömu einstaklinga. Niðurstöðurnar sýna því breytingar á hópnum í heild en ekki á einstaklingum. Breytingarnar eru litlar en jákvæðar, og þær sanna ekki orsakasamband.
Næstu skref
Niðurstöður úr tilraunakennslu námsefnisins verða birtar á næstu dögum.
Námsefnið og spjöldin og myndbönd fyrir foreldra má nálgast á heimasíðu verkefnisins, www.empoweryouth.is.
Leave a Reply