{"id":1985,"date":"2025-01-21T10:46:05","date_gmt":"2025-01-21T10:46:05","guid":{"rendered":"https:\/\/northconsulting.is\/?p=1985"},"modified":"2025-01-23T17:07:50","modified_gmt":"2025-01-23T17:07:50","slug":"mikid-innra-ferdalag-opnar-a-nyjar-paelingar-og-sjonarhorn-lif-sem-er-lifsins-virdi-namskeidid-fra-sjonarholi-fjogurra-thatttakenda","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/northconsulting.is\/en\/mikid-innra-ferdalag-opnar-a-nyjar-paelingar-og-sjonarhorn-lif-sem-er-lifsins-virdi-namskeidid-fra-sjonarholi-fjogurra-thatttakenda\/","title":{"rendered":"Miki\u00f0 innra fer\u00f0alag: &#8222;Opnar \u00e1 n\u00fdjar p\u00e6lingar og sj\u00f3narhorn&#8220;"},"content":{"rendered":"<p><\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\">L\u00edf sem er l\u00edfsins vir\u00f0i n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 fr\u00e1 sj\u00f3narh\u00f3li fj\u00f6gurra \u00fe\u00e1tttakenda<\/h3>\n\n\n\n<p><strong>Fr\u00e1 jan\u00faar til okt\u00f3ber 2024 t\u00f3ku 12 kennarar og sk\u00f3lastj\u00f3rnendur \u00ed grunnsk\u00f3lum v\u00ed\u00f0s vegar um landi\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed tilraunakennslu \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu <em>L\u00edf sem er l\u00edfsins vir\u00f0i; a\u00f0 hugsa um kennara og stj\u00f3rnendur<\/em>.&nbsp; NORTH Consulting, \u00edslenskt mennta- og r\u00e1\u00f0gjafarfyrirt\u00e6ki, \u00fer\u00f3a\u00f0i n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 \u00e1samt H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands \u00ed samstarfi <\/strong><strong>vi\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0legan h\u00f3p menntastofnana og pr\u00f3fessora sem eru hluti af <\/strong><a href=\"https:\/\/faith.yale.edu\/initiatives\/life-worth-living\"><strong>Life Worth Living-verkefninu vi\u00f0 Yale-h\u00e1sk\u00f3la<\/strong><\/a><strong> \u00ed Bandar\u00edkjunum<\/strong><strong> \u00fea\u00f0an sem Life Worth Living-n\u00e1lguninn er upprunnin. \u00cd stuttu m\u00e1li gengur s\u00fa n\u00e1lgun \u00fat \u00e1 a\u00f0 leita svara vi\u00f0 spurningum um tilgang l\u00edfsins og \u00edhuga hva\u00f0 vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 gera til a\u00f0 \u00f6\u00f0last hamingjur\u00edkt og gott l\u00edf. <\/strong><strong><\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><strong>Vi\u00f0 hittum fj\u00f3ra \u00fe\u00e1tttakendur \u00e1 kaffih\u00fasi \u00ed mi\u00f0b\u00e6 Reykjav\u00edkur \u00e1 d\u00f6gunum og fengum a\u00f0 vita hvernig hef\u00f0i gengi\u00f0 \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu og hva\u00f0a \u00e1hrif \u00fea\u00f0 hef\u00f0i haft \u00e1 \u00feau<\/strong><strong> b\u00e6\u00f0i \u00ed einkal\u00edfi og starfi.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>\u201eVi\u00f0 h\u00f6fum mynda\u00f0 \u00f3tr\u00faleg tengsl og traust \u00ed \u00feessum litla h\u00f3pi f\u00f3lks sem \u00feekktist ekkert \u00e1\u00f0ur en \u00feetta fer\u00f0alag h\u00f3fst,\u201c segir \u00c1str\u00f3s R\u00fan Sigur\u00f0ard\u00f3ttir, a\u00f0sto\u00f0arsk\u00f3lastj\u00f3ri Stekkjask\u00f3la \u00ed \u00c1rborg, \u00feegar vi\u00f0 h\u00f6fum komi\u00f0 okkur fyrir og undir \u00feau or\u00f0 taka \u00feau J\u00f3hann Skagfj\u00f6r\u00f0 Magn\u00fasson, sk\u00f3lastj\u00f3ri Gar\u00f0ask\u00f3la \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6, Lilja D\u00f6gg Gylfad\u00f3ttir, kennari \u00ed \u00c1slandssk\u00f3la \u00ed Hafnarfir\u00f0i, og El\u00edn Matthildur Kristinsd\u00f3ttir, sem er kennari \u00ed Grunnsk\u00f3lanum \u00ed Borgarnesi en h\u00f3f s\u00ed\u00f0astli\u00f0i\u00f0 haust st\u00f6rf \u00ed Menntask\u00f3la Borgarfjar\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deau eru \u00f6ll samm\u00e1la um gagnsemi \u00feess a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu og \u00e1n\u00e6gjuna sem hafi fylgt \u00fev\u00ed a\u00f0 kynnast \u00fe\u00e1tttakendunum. &nbsp;\u201e\u00c9g upplif\u00f0i \u00feetta sem mikinn \u201eme-time\u201c, \u00fear sem \u00e9g hef geta\u00f0 gefi\u00f0 m\u00e9r t\u00edma og leyft m\u00e9r a\u00f0 fara \u00ed dj\u00fapar p\u00e6lingar og umr\u00e6\u00f0ur \u00fear sem ekkert anna\u00f0 truflar,\u201c segir El\u00edn og brosir.<\/p>\n\n\n\n<p>Lilja D\u00f6gg b\u00e6tir vi\u00f0 a\u00f0 ofan \u00e1 \u00fea\u00f0 hversu gefandi n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hafi veri\u00f0, hafi \u00fea\u00f0 einnig veri\u00f0 andlega krefjandi. \u201e\u00dea\u00f0 er afhj\u00fapandi oft og t\u00ed\u00f0um, en \u00feegar ma\u00f0ur hefur kynnst f\u00f3lkinu sem er me\u00f0 manni \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu, b\u00e6\u00f0i stj\u00f3rnendum og \u00f6\u00f0rum \u00fe\u00e1tttakendum, \u00fe\u00e1 upplifi \u00e9g fagmennsku og traust. \u00dea\u00f0 er eiginlega mj\u00f6g s\u00e9rstakt hva\u00f0 skapa\u00f0ist flj\u00f3tt miki\u00f0 traust og hversu g\u00f3\u00f0ur andi hefur veri\u00f0 \u00ed h\u00f3pnum.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Hin kinka kolli. \u201eJ\u00e1, \u00fea\u00f0 hefur r\u00edkt mikil samheldni og traust \u00e1 milli \u00fe\u00e1tttakenda,\u201c tekur J\u00f3hann undir me\u00f0 Lilju D\u00f6gg. \u201eVi\u00f0 h\u00f6fum hlegi\u00f0 miki\u00f0 saman en einnig \u00e1tt hreinskiptin og erfi\u00f0 samt\u00f6l,\u201c vi\u00f0urkennir hann.<\/p>\n\n\n\n<p><em>\u201eFyrir m\u00e9r hefur \u00feetta fer\u00f0alag sn\u00faist um a\u00f0 s\u00e6ttast vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem li\u00f0i\u00f0 er og l\u00e6ra af \u00fev\u00ed, nj\u00f3ta \u00feess a\u00f0 dvelja \u00ed sj\u00e1lfum s\u00e9r og l\u00edfinu eins og \u00fea\u00f0 er n\u00fana en vera me\u00f0vita\u00f0ur um framt\u00ed\u00f0ina og hvernig vi\u00f0 sj\u00e1um hana fyrir okkur og hvernig vi\u00f0 \u00e6tlum a\u00f0 komast \u00feanga\u00f0,\u201c <\/em><\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"has-text-align-center\"><em>\u201eFyrir m\u00e9r hefur \u00feetta fer\u00f0alag sn\u00faist um a\u00f0 s\u00e6ttast vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem li\u00f0i\u00f0 er og l\u00e6ra af \u00fev\u00ed, nj\u00f3ta \u00feess a\u00f0 dvelja \u00ed sj\u00e1lfum s\u00e9r og l\u00edfinu eins og <\/em><br><em>\u00fea\u00f0 er n\u00fana en vera me\u00f0vita\u00f0ur um framt\u00ed\u00f0ina og hvernig vi\u00f0 sj\u00e1um hana fyrir okkur og hvernig vi\u00f0 \u00e6tlum a\u00f0 komast \u00feanga\u00f0,\u201c <\/em><\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><sup>Langt umfram v\u00e6ntingar<\/sup><\/h3>\n\n\n\n<p><em>Var n\u00e1lgunin \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu eins og \u00fei\u00f0 h\u00f6f\u00f0u\u00f0 gert ykkur \u00ed hugarlund e\u00f0a kom eitthva\u00f0 \u00e1 \u00f3vart?<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>\u00deau hugsa sig um. J\u00f3hann segir n\u00e1lgunina hafa komi\u00f0 \u00e1 \u00f3vart, satt best a\u00f0 segja, en hann hafi rennt nokku\u00f0 blint \u00ed sj\u00f3inn var\u00f0andi \u00fea\u00f0 hvernig h\u00fan yr\u00f0i. \u201eLei\u00f0beinendur n\u00e1mskei\u00f0sins eru fr\u00e1b\u00e6rir og duglegir a\u00f0 n\u00e1lgast vi\u00f0fangsefni\u00f0 \u00e1 mismunandi m\u00e1ta. Vi\u00f0 h\u00f6fum seti\u00f0 saman \u00ed hring og spjalla\u00f0, unni\u00f0 \u00ed p\u00f6rum og h\u00f3pum, fari\u00f0 \u00ed g\u00f6ngufer\u00f0ir, heims\u00f3tt listasafn og \u00e1tt \u00fe\u00f6gult samtal \u2013 sem var m\u00f6gnu\u00f0 \u00e6fing!\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00e1lgunin er a\u00f0 mati \u00c1str\u00f3sar miklu \u00e1hrifar\u00edkari en h\u00fan haf\u00f0i \u00edmynda\u00f0 s\u00e9r, me\u00f0al annars vegna \u00feess a\u00f0 lei\u00f0beinendur eru \u00f3l\u00edkir og lei\u00f0a h\u00f3pinn \u00e1fram \u00ed samt\u00f6lum og verkefnum me\u00f0 \u00f3l\u00edkum a\u00f0fer\u00f0um \u00fat fr\u00e1 eigin s\u00e9r\u00feekkingu. \u201e\u00deau hafa fengi\u00f0 okkur \u00ed dj\u00fap samt\u00f6l um l\u00edfi\u00f0, \u00fear sem allt er r\u00e6tt \u00e1 einl\u00e6gan og vel \u00edgrunda\u00f0an h\u00e1tt,\u201c segir h\u00fan. &nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, n\u00e1lgunin var enn d\u00fdpri en \u00e9g hef\u00f0i \u00feora\u00f0 a\u00f0 vona,\u201c bendir El\u00edn \u00e1, \u201eog langt umfram v\u00e6ntingar!\u201c <\/p>\n\n\n\n<p>Lilja D\u00f6gg kve\u00f0st ekki hafa veri\u00f0 b\u00fain a\u00f0 mynda s\u00e9r sterka sko\u00f0un \u00e1 n\u00e1lgun n\u00e1mskei\u00f0sins \u00e1\u00f0ur en \u00fea\u00f0 h\u00f3fst. H\u00fan segist hafa gert r\u00e1\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 unni\u00f0 yr\u00f0i me\u00f0 verkefni sem er a\u00f0 finna \u00ed <em>Life Worth Living<\/em>-b\u00f3kinni en \u00fea\u00f0 hafi komi\u00f0 skemmtilega \u00e1 \u00f3vart hversu fj\u00f6lbreyttar a\u00f0fer\u00f0ir voru nota\u00f0ar vi\u00f0 a\u00f0 d\u00fdpka spurningar og kanna efni\u00f0. \u201e\u00c9g haf\u00f0i ekki gert m\u00e9r grein fyrir \u00fev\u00ed hva\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri mikil n\u00e1nd og mikil opinberun,\u201c segir h\u00fan, \u201een f\u00f3lk r\u00e6\u00f0ur \u00fev\u00ed au\u00f0vita\u00f0 sj\u00e1lft hve mikil.\u201c <\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1str\u00f3s segist jafnframt kunna a\u00f0 meta a\u00f0 vi\u00f0horf allra skuli hafa veri\u00f0 virt og metin \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu. \u201eVerkefnin eru mj\u00f6g \u00f3l\u00edk \u00fev\u00ed sem ma\u00f0ur hefur kynnst og g\u00f3\u00f0 fyrir okkar innra fer\u00f0alag og sj\u00e1lfsko\u00f0un.\u201c&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong><sub>\u00d6\u00f0ruv\u00edsi fer\u00f0alag<\/sub><\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p>Fer\u00f0alag er einmitt or\u00f0 sem \u00c1str\u00f3s og Lilja D\u00f6gg kj\u00f3sa b\u00e1\u00f0ar a\u00f0 nota \u00feegar h\u00f3purinn er be\u00f0inn um a\u00f0 l\u00fdsa upplifun sinni af n\u00e1mskei\u00f0inu \u00ed einu or\u00f0i. \u00c1str\u00f3s tekur fram a\u00f0 fer\u00f0alagi\u00f0 hafi \u00fe\u00f3 veri\u00f0 t\u00f6luvert \u00f3l\u00edkt \u00fev\u00ed sem h\u00fan bj\u00f3st vi\u00f0. \u201e\u00c9g h\u00e9lt a\u00f0 \u00feetta yr\u00f0i meira vinnumi\u00f0a\u00f0,\u201c j\u00e1tar h\u00fan, \u201een \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 alls ekki og lei\u00f0beinendur okkar hafa einmitt tala\u00f0 um \u00fea\u00f0; vi\u00f0 r\u00e6\u00f0um ekki vinnuna. Vinnan sn\u00fdr a\u00f0 okkur sj\u00e1lfum. \u00deetta er \u00fev\u00ed miki\u00f0 innra fer\u00f0alag og \u00edgrundun um l\u00edfi\u00f0 \u2013 sem er \u00ed einu or\u00f0i sagt fr\u00e1b\u00e6rt!\u201c&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd huga Lilju Daggar er n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 fer\u00f0alag um l\u00edfi\u00f0, \u00fea\u00f0 li\u00f0na, n\u00fai\u00f0 og framt\u00ed\u00f0ina. \u201eFyrir m\u00e9r hefur \u00feetta fer\u00f0alag sn\u00faist um a\u00f0 s\u00e6ttast vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem li\u00f0i\u00f0 er og l\u00e6ra af \u00fev\u00ed, nj\u00f3ta \u00feess a\u00f0 dvelja \u00ed sj\u00e1lfum s\u00e9r og l\u00edfinu eins og \u00fea\u00f0 er n\u00fana en vera me\u00f0vita\u00f0ur um framt\u00ed\u00f0ina og hvernig vi\u00f0 sj\u00e1um hana fyrir okkur og hvernig vi\u00f0 \u00e6tlum a\u00f0 komast \u00feanga\u00f0,\u201c \u00fatsk\u00fdrir h\u00fan.<\/p>\n\n\n\n<p>El\u00edn k\u00fds hins vegar frekar a\u00f0 nota or\u00f0i\u00f0 \u201eupptendrun\u201c til a\u00f0 l\u00fdsa sinni upplifinu af n\u00e1mskei\u00f0inu. \u201e\u00dea\u00f0 er vegna \u00feess a\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 var s\u00edfellt veri\u00f0 a\u00f0 opna \u00e1 n\u00fdjar skynjanir, p\u00e6lingar og sj\u00f3narhorn,\u201c bendir h\u00fan \u00e1.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1 me\u00f0an finnst J\u00f3hanni&nbsp; or\u00f0i\u00f0 \u201e\u00e1skorun\u201c eiga vel vi\u00f0 s\u00edna reynslu. \u201eVegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum \u00feurft a\u00f0 r\u00e6\u00f0a m\u00e1lefni og tilfinningar sem ma\u00f0ur gefur s\u00e9r sjaldnast t\u00edma til a\u00f0 gera n\u00e6gilega vel \u00ed amstri dagsins, og jafnvel veigrar s\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0 gera,\u201c segir hann.<\/p>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-cover is-light\"><span aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-cover__background has-background-dim-0 has-background-dim\"><\/span><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"640\" height=\"480\" class=\"wp-block-cover__image-background wp-image-2000\" alt=\"\" src=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Dalalif5.jpg\" data-object-fit=\"cover\" srcset=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Dalalif5.jpg 640w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Dalalif5-300x225.jpg 300w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Dalalif5-16x12.jpg 16w\" sizes=\"auto, (max-width: 640px) 100vw, 640px\" \/><div class=\"wp-block-cover__inner-container is-layout-flow wp-block-cover-is-layout-flow\">\n<p class=\"has-text-align-center has-large-font-size\"><\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong><sub>Langa\u00f0i a\u00f0 finna \u00e1str\u00ed\u00f0una aftur<\/sub><\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p>\u00deegar \u00feau eru spur\u00f0 hva\u00f0 hafi or\u00f0i\u00f0 til \u00feess a\u00f0 \u00feau \u00e1kv\u00e1\u00f0u a\u00f0 skr\u00e1 sig \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0, \u00feegar augl\u00fdst var eftir \u00fe\u00e1tttakendum \u00ed n\u00f3vember 2023, kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed eru afar \u00f3l\u00edkar \u00e1st\u00e6\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g var svol\u00edti\u00f0 leitandi a\u00f0 einhverju sem fengi mig til a\u00f0 endurmeta starfskenningu m\u00edna,\u201c segir \u00c1str\u00f3s og \u00fatsk\u00fdrir a\u00f0 \u00feegar h\u00fan rakst \u00e1 augl\u00fdsinguna hafi h\u00fan veri\u00f0 or\u00f0in lang\u00fereytt af st\u00f6\u00f0ugu vinnu\u00e1lagi s\u00ed\u00f0astli\u00f0in \u00ferj\u00fa \u00e1r sem a\u00f0sto\u00f0arsk\u00f3lastj\u00f3ri \u00ed n\u00fdjum grunnsk\u00f3la, Stekkjask\u00f3la \u00ed \u00c1rborg.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g var b\u00fain a\u00f0 leggja allt mitt \u00ed verkefni\u00f0 og meira til en fann \u00e1 einhverjum t\u00edmapunkti a\u00f0 \u00e9g uppskar ekkert. \u00c9g var bara \u00fereytt og hugsa\u00f0i miki\u00f0 hvort \u00feetta v\u00e6ri \u00feess vir\u00f0i. Mig langa\u00f0i a\u00f0 finna gle\u00f0ina \u00ed starfinu aftur, \u00e1str\u00ed\u00f0una fyrir uppeldis- og menntam\u00e1lum, n\u00e1 \u00e1rangri og vera g\u00f3\u00f0 fyrirmynd b\u00e6\u00f0i fyrir b\u00f6rnin og svo au\u00f0vita\u00f0 fyrir starfsf\u00f3lki\u00f0 okkar l\u00edka. \u00deegar \u00fe\u00fa ert komin \u00e1 endast\u00f6\u00f0 ertu nefnilega ekki g\u00f3\u00f0 fyrirmynd. \u00de\u00e1 er gott a\u00f0 sko\u00f0a hvort ma\u00f0ur getur breytt einhverju, horft inn \u00e1 vi\u00f0 og sko\u00f0a\u00f0 hva\u00f0 ma\u00f0ur vill gera \u00f6\u00f0ruv\u00edsi me\u00f0 l\u00edf sitt. \u00deetta [n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0] var p\u00ednul\u00edti\u00f0 skrifa\u00f0 \u00ed sk\u00fdin,\u201c segir h\u00fan.<\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong><sub>Vildi ver\u00f0a betri manneskja<\/sub><\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p>Lilja D\u00f6gg segist aftur \u00e1 m\u00f3ti hafa veri\u00f0 b\u00fain a\u00f0 kynna s\u00e9r n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 <em>Life Worth Living<\/em> sem Yale-h\u00e1sk\u00f3li hefur unni\u00f0 a\u00f0 og \u00fer\u00f3a\u00f0 s\u00ed\u00f0an 2014 og sem <em>Life Worth Living<\/em> byggir a\u00f0 hluta til \u00e1, hlusta\u00f0 \u00e1 h\u00f6funda samnefndrar b\u00f3kar fjalla um hana \u00e1 \u00cdslandi um sumari\u00f0, keypt b\u00f3kina og \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 lesa hana \u00ed samfloti me\u00f0 vinkonu sinni. \u00deegar n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 var augl\u00fdst \u00feurfti h\u00fan engan umhugsunarfrest. \u201e\u00c9g vissi strax a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri eitthva\u00f0 fyrir mig,\u201c segir h\u00fan, \u201e\u00e1kva\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kja um og vona\u00f0ist til a\u00f0 komast a\u00f0, sem s\u00ed\u00f0an ger\u00f0ist.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>El\u00edn segir l\u00fdsinguna \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu einfaldlega hafa h\u00f6f\u00f0a\u00f0 til s\u00edn. \u201e\u00dea\u00f0 virtist \u00e1hugavert og dj\u00fapt. L\u00fdsingin gaf h\u00e6filega miki\u00f0 upp en gefi\u00f0 var \u00ed skyn a\u00f0 \u00fdmislegt v\u00e6ri \u00f3sagt og \u00fea\u00f0 vakti forvitni m\u00edna,\u201c segir h\u00fan og b\u00e6tir vi\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi legi\u00f0 fyrir a\u00f0 visst hugrekki \u00feyrfti til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00feessu verkefni.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p>J\u00f3hann segist hins vegar hafa s\u00e9\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 sem t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 r\u00e6kta sj\u00e1lfan sig og \u201ejafnvel ver\u00f0a \u00f6gn betri manneskja\u201c, eins og hann or\u00f0ar \u00fea\u00f0, en J\u00f3hann er \u00ed krefjandi starfi sem sk\u00f3lastj\u00f3ri Gar\u00f0ask\u00f3la \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6, eins og \u00e1\u00f0ur sag\u00f0i, og me\u00f0 st\u00f3ra fj\u00f6lskyldu og me\u00f0vita\u00f0ur um mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 passa upp \u00e1 sj\u00e1lfan sig.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"has-text-align-center\">\u201e<em>\u00c9g hef sj\u00e1lf alltaf haft sterk gildi \u00ed l\u00edfinu, eins konar lei\u00f0arlj\u00f3s fyrir mig sj\u00e1lfa, sem tengist &nbsp;a\u00f0 hluta til uppeldi og tengslum vi\u00f0 f\u00f3lk. \u00cd \u00feessu fer\u00f0alagi hef \u00e9g l\u00e6rt a\u00f0 vera <\/em><em>svol\u00edti\u00f0 mildari vi\u00f0 sj\u00e1lfa mig, gefa m\u00e9r t\u00e6kif\u00e6ri og t\u00edma til a\u00f0 hugsa um mig og setja mig \u00ed fyrsta s\u00e6ti, sko\u00f0a samskipti vi\u00f0 a\u00f0ra, jafnvel f\u00f3lk sem er m\u00e9r n\u00e1komi\u00f0.\u201c<\/em><\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong><sub>\u201eS\u00e1rt en frelsandi l\u00edka\u201c<\/sub><\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p><em>Finnst ykkur n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hafa breytt \u00fev\u00ed hvernig \u00fei\u00f0 hugsi\u00f0 almennt um eigin tilgang \u00ed l\u00edfinu og hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00ed raun sem g\u00e6\u00f0ir l\u00edfi\u00f0 merkingu? Og hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 gert einhverjar breytingar eftir \u00fea\u00f0?<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, algj\u00f6rlega,\u201c svarar \u00c1str\u00f3s. H\u00fan segir a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 kannski erfitt a\u00f0 l\u00fdsa \u00fev\u00ed fyrir \u00f6\u00f0rum hvers konar n\u00e1mskei\u00f0 \u00feetta s\u00e9 en h\u00fan telji a\u00f0 \u00fea\u00f0 skili hverjum \u00fe\u00e1tttakanda \u00f3l\u00edkum hlutum. \u201e\u00c9g hef sj\u00e1lf alltaf haft sterk gildi \u00ed l\u00edfinu, eins konar lei\u00f0arlj\u00f3s fyrir mig sj\u00e1lfa, sem tengist &nbsp;a\u00f0 hluta til uppeldi og tengslum vi\u00f0 f\u00f3lk. \u00cd \u00feessu fer\u00f0alagi hef \u00e9g l\u00e6rt a\u00f0 vera svol\u00edti\u00f0 mildari vi\u00f0 sj\u00e1lfa mig, gefa m\u00e9r t\u00e6kif\u00e6ri og t\u00edma til a\u00f0 hugsa um mig og setja mig \u00ed fyrsta s\u00e6ti, sko\u00f0a samskipti vi\u00f0 a\u00f0ra, jafnvel f\u00f3lk sem er m\u00e9r n\u00e1komi\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu segist \u00c1str\u00f3s einmitt hafa uppg\u00f6tva\u00f0 a\u00f0 sum samskipti hafi krafist of mikils af henni. \u201eOf margir n\u00e1komnir m\u00e9r hafa eing\u00f6ngu teki\u00f0 \u00fat \u00far \u201ebankanum\u201c m\u00ednum en ekkert lagt inn,\u201c segir h\u00fan bl\u00e1tt \u00e1fram. \u201e\u00cd svona vinnu [eins og \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu] fer ma\u00f0ur a\u00f0 flokka og \u00feora a\u00f0 velja frekar samskipti og samveru me\u00f0 f\u00f3lki sem n\u00e6rir mann og styrkir. Eins og \u00fea\u00f0 er s\u00e1rt, er \u00fea\u00f0 frelsandi l\u00edka.\u201c<\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong><sub>S\u00e9r hlutina \u00ed n\u00fdju lj\u00f3si<\/sub><\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p>Lilja D\u00f6gg segist lengi hafa bur\u00f0ast me\u00f0 neikv\u00e6\u00f0ar hugsanir, \u00feungar tilfinningar og \u00f3tta um hva\u00f0 \u00f6\u00f0rum finnist um sig. N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hafi fengi\u00f0 hana til a\u00f0 sj\u00e1 hlutina \u00ed n\u00fdju samhengi og \u00ed r\u00e9ttara lj\u00f3si.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 hefur fyrst og fremst opna\u00f0 fyrir sj\u00e1lfri m\u00e9r hvers vir\u00f0i l\u00edf mitt er og f\u00f3lki\u00f0 mitt \u00ed kringum mig,\u201c l\u00fdsir h\u00fan. \u201eHverjum \u00e9g vil deila t\u00edma m\u00ednum me\u00f0, hver er \u00feess vir\u00f0i og hva\u00f0a verkefni eru \u00feess vir\u00f0i.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Eftir \u00fev\u00ed sem hafi li\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00fea\u00f0 hafi h\u00fan fari\u00f0 a\u00f0 velta fyrir s\u00e9r hva\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 sem raunverulega skipti m\u00e1li \u00ed l\u00edfinu. Eins og \u00feegar h\u00fan \u00feurfi a\u00f0 a\u00f0 velja um a\u00f0 m\u00e6ta \u00e1 vi\u00f0bur\u00f0i e\u00f0a vera me\u00f0 sj\u00e1lfri s\u00e9r e\u00f0a fj\u00f6lskyldunni. \u201eM\u00e9r finnst \u00e9g s\u00ed\u00f0ur vera a\u00f0 missa af einhverju. \u00c9g finn hva\u00f0 fj\u00f6lskylda m\u00edn skiptir mig miklu m\u00e1li. Og hva\u00f0 litlu stundirnar, eins og a\u00f0 bor\u00f0a saman kv\u00f6ldmat, hafa d\u00fdpka\u00f0 [og hva\u00f0] litlu hlutirnir, eins og a\u00f0 skutla syni m\u00ednum, skipta miklu m\u00e1li. Sl\u00edkt gefur m\u00e9r t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 spjalla e\u00f0a fer\u00f0ast saman \u00ed \u00fe\u00f6gninni og bara vera. \u00dea\u00f0 a\u00f0 komast \u00e1 fjallstindinn \u00e1 sem skemmstum t\u00edma er [me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um] ekki lengur eini m\u00e6likvar\u00f0inn, \u00fea\u00f0 er \u00ed raun f\u00e9lagsskapurinn vi\u00f0 sj\u00e1lfa mig e\u00f0a g\u00f6nguf\u00e9lagana sem er d\u00fdrm\u00e6tastur.\u201c<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image alignright is-resized\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"480\" height=\"640\" src=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/THogult-samtal2.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-1992\" style=\"width:458px;height:auto\" srcset=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/THogult-samtal2.jpg 480w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/THogult-samtal2-225x300.jpg 225w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/THogult-samtal2-9x12.jpg 9w\" sizes=\"auto, (max-width: 480px) 100vw, 480px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-cover alignright is-light\" style=\"min-height:609px;aspect-ratio:unset;\"><span aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-cover__background has-background-dim-0 has-background-dim\"><\/span><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"640\" height=\"480\" class=\"wp-block-cover__image-background wp-image-1993\" alt=\"\" src=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/THogult-samtal.jpg\" data-object-fit=\"cover\" srcset=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/THogult-samtal.jpg 640w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/THogult-samtal-300x225.jpg 300w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/THogult-samtal-16x12.jpg 16w\" sizes=\"auto, (max-width: 640px) 100vw, 640px\" \/><div class=\"wp-block-cover__inner-container is-layout-flow wp-block-cover-is-layout-flow\">\n<p class=\"has-text-align-center has-large-font-size\"><\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong><sub>Uppg\u00f6tva\u00f0i sk\u00fdrari tilgang<\/sub><\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p>J\u00f3hann segist einnig hafa n\u00e1\u00f0 a\u00f0 skerpa s\u00edna eigin s\u00fdn \u00e1 l\u00edfi\u00f0 og tilveruna. \u201e\u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu hef \u00e9g l\u00e6rt a\u00f0 n\u00e1lgast a\u00f0st\u00e6\u00f0ur og f\u00f3lk \u00fat fr\u00e1 fleiri sj\u00f3narhornum en \u00e1\u00f0ur og \u00ed gegnum \u00fea\u00f0 uppg\u00f6tva\u00f0 sk\u00fdrari eigin tilgang.\u201c \u00de\u00e1 segir J\u00f3hann a\u00f0 honum s\u00e9 oft hugsa\u00f0 til fyrstu spurningar n\u00e1mskei\u00f0sins \u201eGagnvart hverjum berum vi\u00f0 \u00e1byrg\u00f0?\u201c \u00cd hans huga s\u00e9 \u00feetta spurning sem \u00f6llum s\u00e9 hollt a\u00f0 spyrja sig a\u00f0 reglulega. \u201e\u00cd m\u00ednu tilfelli hefur h\u00fan or\u00f0i\u00f0 til \u00feess a\u00f0 \u00ed dag tek \u00e9g f\u00e6rri verkefni sem eru einfaldlega ekki m\u00edn a\u00f0 taka a\u00f0 m\u00e9r,\u201c nefnir hann sem d\u00e6mi.<\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong><sub>Skipti um starf \u00e1 mi\u00f0ju n\u00e1mskei\u00f0i<\/sub><\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 olli s\u00f6mulei\u00f0is straumhv\u00f6rfum hj\u00e1 El\u00ednu, sem segist finna meira \u00f6ryggi \u00ed sj\u00e1lfri s\u00e9r og \u00fev\u00ed hver h\u00fan er og hva\u00f0 h\u00fan stendur fyrir. Flj\u00f3tlega eftir a\u00f0 \u00fea\u00f0 h\u00f3fst hafi h\u00fan uppg\u00f6tva\u00f0 a\u00f0 hana vanta\u00f0i \u00e1skorun \u00ed annars \u00e1hugaver\u00f0u og \u00fe\u00e6gilegu starfi s\u00ednu og a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri tilb\u00fain \u00ed meiri \u00e1byrg\u00f0. El\u00edn l\u00e9t \u00fev\u00ed slag standa og skipti um starfsvettvang \u00e1 mi\u00f0ju n\u00e1mskei\u00f0i. \u201eN\u00fdja starfi\u00f0 er eins og sni\u00f0i\u00f0 fyrir mig svo \u00e9g er mj\u00f6g \u00e1n\u00e6g\u00f0,\u201c segir h\u00fan og er full tilhl\u00f6kkunar a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00e1skoranir n\u00fds starfs.<\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong><sub>Kom \u00e1 \u00f3vart hva\u00f0 f\u00f3lk var tilb\u00fai\u00f0 a\u00f0 berskjalda sig<\/sub><\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p><em>\u00c1ttu\u00f0 \u00fei\u00f0 von \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 myndu\u00f0 uppg\u00f6tva \u00feessa hluti um ykkur, a\u00f0ra og l\u00edfi\u00f0 sj\u00e1lft? <\/em><\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g \u00e1tti alveg von \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 <em>Life Worth Living<\/em>-fer\u00f0alagi\u00f0 yr\u00f0i ein st\u00f3r uppg\u00f6tvun,\u201c svarar El\u00edn, sem kve\u00f0st hafa noti\u00f0 \u00feess a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed og hlusta \u00e1 \u00e1hugaver\u00f0 samt\u00f6l og p\u00e6lingar \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu. \u201eEn \u00fea\u00f0 sem kom m\u00e9r kannski mest \u00e1 \u00f3vart var hversu au\u00f0velt var a\u00f0 skapa \u00fea\u00f0 andr\u00famsloft og traust \u00ed h\u00f3pnum.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Lilja D\u00f6gg tekur undir \u00feessi or\u00f0 El\u00ednar. H\u00fan haf\u00f0i v\u00e6ntingar um a\u00f0 lj\u00faka n\u00e1mskei\u00f0inu me\u00f0 meiri sj\u00e1lfs\u00feekkingu og betri l\u00ed\u00f0an en segir \u00fea\u00f0 hafa komi\u00f0 s\u00e9r \u00ed opna skj\u00f6ldu hversu mikla einl\u00e6gni \u00fe\u00e1tttakendur s\u00fdndu og hversu tilb\u00fanir \u00feeir voru a\u00f0 berskjalda sig, sem hafi vali\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 a\u00f0rir ger\u00f0u sl\u00edkt hi\u00f0 sama. \u201e\u00dea\u00f0 kom m\u00e9r \u00e1 \u00f3vart hva\u00f0 h\u00f3purinn er sterkur og einl\u00e6gur og hva\u00f0 hann small saman strax \u00e1 fyrstu vinnustofunni,\u201c l\u00fdsir h\u00fan. \u201eF\u00f3lk sem \u00feekktist ekki neitt \u00ed upphafi hefur ofi\u00f0 fallegan k\u00e6rleiks\u00fer\u00e1\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"has-text-align-center\"><em>\u201eLoksins hef \u00e9g l\u00e6rt a\u00f0 framkv\u00e6ma hluti sem \u00e9g hef vita\u00f0 innst inni a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 gera,\u201c<\/em><\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong><sub>N\u00fd verkf\u00e6ri og hagn\u00fdt endurmenntun<\/sub><\/strong><\/h3>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-cover alignright is-light has-custom-content-position is-position-bottom-right\" style=\"min-height:889px;aspect-ratio:unset;\"><span aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-cover__background has-background-dim-0 has-background-dim\" style=\"background-color:#a9aaaa\"><\/span><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"480\" height=\"640\" class=\"wp-block-cover__image-background wp-image-2036\" alt=\"\" src=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Laugabakki1-1.jpg\" data-object-fit=\"cover\" srcset=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Laugabakki1-1.jpg 480w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Laugabakki1-1-225x300.jpg 225w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Laugabakki1-1-9x12.jpg 9w\" sizes=\"auto, (max-width: 480px) 100vw, 480px\" \/><div class=\"wp-block-cover__inner-container is-layout-flow wp-block-cover-is-layout-flow\">\n<p class=\"has-text-align-center has-large-font-size\"><\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<p>J\u00f3hann kinkar kolli. \u201eH\u00f3purinn er sterk heild og \u00e1 milli \u00fe\u00e1tttakenda hefur r\u00edkt traust og samheldni,\u201c segir hann. Hann segir a\u00f0allega hafa komi\u00f0 honum \u00e1 \u00f3vart hversu hagn\u00fdtt n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er. \u201eLoksins hef \u00e9g l\u00e6rt a\u00f0 framkv\u00e6ma hluti sem \u00e9g hef vita\u00f0 innst inni a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 gera,\u201c bendir hann \u00e1.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1str\u00f3s var l\u00edka \u00ed leit a\u00f0 hagn\u00fdtri endurmenntun, n\u00fdjum verkf\u00e6rum \u00ed verkf\u00e6rakistuna, en s\u00e1 flj\u00f3tt a\u00f0 \u00feetta fer\u00f0alag var allt \u00f6\u00f0ruv\u00edsi en h\u00fan bj\u00f3st vi\u00f0. \u201eM\u00e9r fannst d\u00e1samlegt a\u00f0 uppg\u00f6tva a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki veri\u00f0 a\u00f0 f\u00f3kusera \u00e1 vinnuna sem sl\u00edka heldur okkur sj\u00e1lf, samtali\u00f0, trausti\u00f0, v\u00e6ntingar, fort\u00ed\u00f0ina, framt\u00ed\u00f0ina, andlega n\u00e6ringu og r\u00f3,\u201c segir h\u00fan.<\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong><sub>Sk\u00fdrari s\u00fdn \u00e1 starfi\u00f0<\/sub><\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p>N\u00fa eru \u00c1str\u00f3s og J\u00f3hann stj\u00f3rnendur \u00ed sk\u00f3la en Lilja D\u00f6gg og El\u00edn kennarar, eins og \u00e1\u00f0ur sag\u00f0i. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed forvitnilegt a\u00f0 vita hvort n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hafi haft \u00e1hrif \u00e1 \u00fea\u00f0 hvernig \u00feau sinna starfi s\u00ednu e\u00f0a hvort \u00feau langi til a\u00f0 breyta einhverju eftir \u00fe\u00e1ttt\u00f6kuna \u00fear?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deau hugsa sig um. &nbsp;Eftir miki\u00f0 vinnu\u00e1lag s\u00ed\u00f0astli\u00f0in \u00ferj\u00fa \u00e1r segist \u00c1str\u00f3s hafa veri\u00f0 b\u00fain a\u00f0 glata neistanum \u00ed starfi s\u00ednu. N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hafi hj\u00e1lpa\u00f0 henni a\u00f0 finna neistann aftur og muna af hverju h\u00fan gerir \u00fea\u00f0 sem h\u00fan gerir.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g reyni a\u00f0 vera g\u00f3\u00f0ur og hvetjandi lei\u00f0togi og fyrirmynd en \u00e1 sama t\u00edma g\u00f3\u00f0ur samstarfsma\u00f0ur,\u201c segir h\u00fan. \u201e\u00c9g er samt samkv\u00e6m sj\u00e1lfri m\u00e9r og leyfi m\u00e9r a\u00f0 dreyma st\u00f3rt og \u00e9g vil a\u00f0 vi\u00f0 setjum okkur markmi\u00f0 og \u00feorum a\u00f0 taka \u00e1kvar\u00f0anir me\u00f0 fars\u00e6ld nemenda okkar \u00ed huga.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1str\u00f3s segist l\u00edka vera or\u00f0in betri \u00ed a\u00f0 setja eigin l\u00ed\u00f0an \u00ed forgrunn, hugsa betur um heilsuna og stunda hreyfingu. \u201eMe\u00f0 \u00fev\u00ed er \u00e9g betri \u00fatg\u00e1fan af m\u00e9r, betri m\u00f3\u00f0ir, betri maki og betri lei\u00f0togi.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>&nbsp;J\u00f3hann er samm\u00e1la \u00c1str\u00f3s um a\u00f0 \u00fe\u00e1tttaka \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu hafi styrkt sig \u00ed starfi og honum finnst hann hafa \u00f6\u00f0last sk\u00fdrari s\u00fdn \u00e1 \u00fea\u00f0 hvers hann geti \u00e6tlast til af sj\u00e1lfum s\u00e9r og \u00f6\u00f0rum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g hef einnig l\u00e6rt margar a\u00f0fer\u00f0ir til sko\u00f0anaskipta, a\u00f0fer\u00f0ir sem \u00e9g \u00feekkti ekki \u00e1\u00f0ur, eins og \u00fe\u00f6gult samtal sem \u00e9g hlakka mj\u00f6g til a\u00f0 pr\u00f3fa me\u00f0 samstarfsf\u00f3lki m\u00ednu,\u201c segir hann k\u00edminn.<\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong><sub>Aukinn drifkraftur<\/sub><\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p>El\u00edn skipti um starf \u00e1 mi\u00f0ju n\u00e1mskei\u00f0i og segist hafa skili\u00f0 vi\u00f0 gamla starfi\u00f0 \u00ed fullri s\u00e1tt og me\u00f0 stolti. H\u00fan hlakkar til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00e1skoranir n\u00fds starfs. \u201eN\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hefur hj\u00e1lpa\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 leyfa hjartanu og n\u00fdjum drifkrafti a\u00f0 lei\u00f0a mig \u00e1fram,\u201c l\u00fdsir h\u00fan brosandi og b\u00e6tir vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fan nj\u00f3ti \u00feess miki\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Lilja D\u00f6gg segist nj\u00f3ta \u00feess a\u00f0 kenna, hafa g\u00f3\u00f0 \u00e1hrif og vera skj\u00f3l fyrir b\u00f6rn. Henni finnst n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 ekki hafa breytt s\u00e9r beint sem kennara. Hins vegar hafi \u00fea\u00f0 breytt hugmyndum hennar vi\u00f0 a\u00f0 byggja upp sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0a einstaklinga sem l\u00ed\u00f0i vel \u00ed eigin skinni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEftir a\u00f0 \u00e9g byrja\u00f0i \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu hef \u00e9g markvisst kennt b\u00f6rnunum a\u00f0 tala fallega til sj\u00e1lfra s\u00edn, a\u00f0 \u00feau geti gert allt sem \u00feau langar til gera og ver\u00f0a, en fyrst og fremst a\u00f0 vera g\u00f3\u00f0ar manneskjur,\u201c segir h\u00fan og heldur \u00e1fram. \u201e\u00c9g t\u00f3k \u00fea\u00f0 til m\u00edn \u00feegar vi\u00f0 vorum a\u00f0 tala um hvernig svipbrig\u00f0i hafa \u00e1hrif, l\u00edkamstj\u00e1ning og \u00f6nnur heg\u00f0un \u00e1n or\u00f0a, hversu mikilv\u00e6gt \u00fea\u00f0 fyrir mig sem kennara a\u00f0 falla ekki \u00ed \u00fe\u00e1 gryfju a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra ekki eins vel og \u00e9g get hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er sem \u00e9g er a\u00f0 meina \u00feannig a\u00f0 barni\u00f0 upplifi sig ekki \u00f3m\u00f6gulegt og reyni a\u00f0 fylgja \u00fev\u00ed markvisst eftir. \u201c<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"has-text-align-center\">\u201e<em>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er einfaldlega fr\u00e1b\u00e6r lei\u00f0 til a\u00f0 l\u00edta inn \u00e1 vi\u00f0 og skerpa \u00e1 eigin l\u00edfsreglum og vi\u00f0horfi til l\u00edfsins og annars f\u00f3lks. \u00c9g m\u00e6li hiklaust me\u00f0 \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku fyrir alla.\u201c&nbsp;<\/em><\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong><sub>M\u00e6la heilshugar me\u00f0 \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku<\/sub><\/strong><\/h3>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-cover\"><span aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-cover__background has-background-dim-0 has-background-dim\"><\/span><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"640\" height=\"480\" class=\"wp-block-cover__image-background wp-image-1997\" alt=\"\" src=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Fire-3.jpg\" data-object-fit=\"cover\" srcset=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Fire-3.jpg 640w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Fire-3-300x225.jpg 300w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Fire-3-16x12.jpg 16w\" sizes=\"auto, (max-width: 640px) 100vw, 640px\" \/><div class=\"wp-block-cover__inner-container is-layout-flow wp-block-cover-is-layout-flow\">\n<p class=\"has-text-align-center has-large-font-size\"><\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<p><em>\u00cd lokin, \u00fev\u00ed \u00e6ttu kennarar, sk\u00f3lastj\u00f3rnendur og a\u00f0rir sem vilja efla sig sem lei\u00f0toga \u00ed pers\u00f3nulegu l\u00edfi og faglegu starfi a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed n\u00e1mskei\u00f0i eins og L\u00edf sem er l\u00edfsins vir\u00f0i?<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>J\u00f3hann er flj\u00f3tur til svars. \u201eN\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er einfaldlega fr\u00e1b\u00e6r lei\u00f0 til a\u00f0 l\u00edta inn \u00e1 vi\u00f0 og skerpa \u00e1 eigin l\u00edfsreglum og vi\u00f0horfi til l\u00edfsins og annars f\u00f3lks. \u00c9g m\u00e6li hiklaust me\u00f0 \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku fyrir alla.\u201c&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p>El\u00edn segist m\u00e6la me\u00f0 \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku fyrir alla sem vilja \u201efinna sig enn betur \u00ed eigin l\u00edfi, b\u00e6\u00f0i \u00fev\u00ed sem tengist starfsvettvangi og pers\u00f3nulegu l\u00edfi.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Lilja D\u00f6gg \u00e1r\u00e9ttar mikilv\u00e6gi \u00feess \u00ed erils\u00f6mu starfi kennarans hversu mikilv\u00e6gt \u00fea\u00f0 er a\u00f0 vera \u00ed g\u00f3\u00f0u jafnv\u00e6gi, temja s\u00e9r g\u00f3\u00f0a sj\u00e1lfstj\u00f3rn og lengja a\u00f0eins \u00ed vi\u00f0brag\u00f0st\u00edma s\u00ednum gagnvart \u00e1reiti og \u00f3v\u00e6ntum upp\u00e1komum. \u00de\u00e1tttaka \u00ed <em>L\u00edfi sem er l\u00edfsins vir\u00f0i<\/em> hafi f\u00e6rt hana n\u00e6r sj\u00e1lfri s\u00e9r og h\u00fan hefur \u00f6\u00f0last meiri og d\u00fdpri innri r\u00f3.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 eru s\u00edfellt f\u00e6rri hlutir sem koma m\u00e9r \u00far jafnv\u00e6gi, \u00e9g er s\u00e1ttari vi\u00f0 sj\u00e1lfa mig og dvel betur \u00ed sj\u00e1lfri m\u00e9r eins og \u00e9g er. \u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu hef \u00e9g einnig \u00fej\u00e1lfast \u00ed a\u00f0 hlusta \u00e1 sko\u00f0anir annarra og vir\u00f0a \u00fe\u00e6r, v\u00edkka sj\u00f3ndeildarhringinn og opna m\u00e9r n\u00fdja s\u00fdn,\u201c segir Lilja D\u00f6gg.<\/p>\n\n\n\n<p>L\u00edf sem er l\u00edfsins vir\u00f0i er fr\u00e1brug\u00f0i\u00f0 \u00f6\u00f0rum n\u00e1mskei\u00f0um sem \u00c1str\u00f3s hefur teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed. H\u00fan m\u00e6lir sannarlega me\u00f0 \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku en minnir \u00e1 a\u00f0 f\u00f3lk \u00feurfi a\u00f0 hafa kjark og vilja til a\u00f0 fara \u00ed innra fer\u00f0alag. \u201eEn \u00fear hefst allt,\u201c segir h\u00fan og b\u00e6tir vi\u00f0: \u201eTil a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed L\u00edf sem er l\u00edfsins vir\u00f0i \u00fearftu a\u00f0 vera opin og hei\u00f0arleg og hafa \u00e1huga \u00e1 f\u00f3lki og mennskunni.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Me\u00f0 \u00feeim or\u00f0um \u00fe\u00f6kkum vi\u00f0 \u00feeim \u00c1str\u00f3s, J\u00f3hanni, Lilju D\u00f6gg og El\u00ednu fyrir spjalli\u00f0 og \u00f3skum \u00feeim g\u00f3\u00f0s gengis \u00ed framt\u00ed\u00f0inni.<\/p>\n\n\n\n<p>VILTU VITA MEIRA?  SKR\u00c1\u00d0U \u00deIG \u00c1 VEFFUND UM L\u00cdF SEM ER L\u00cdFSINS VIR\u00d0I N\u00c1LGUNINA \u00deRI\u00d0JUDAGINN 28. JAN\u00daAR KL. 15 <a href=\"https:\/\/forms.office.com\/Pages\/ResponsePage.aspx?id=D9ZpIH7_YkKXYFZ5eKmAUcZb3zum-FNDpXs29Sq1Og5UNThPVkM0R1ZESkdZSU4zU1AxOEVOSFJRTS4u\" data-type=\"link\" data-id=\"https:\/\/forms.office.com\/Pages\/ResponsePage.aspx?id=D9ZpIH7_YkKXYFZ5eKmAUcZb3zum-FNDpXs29Sq1Og5UNThPVkM0R1ZESkdZSU4zU1AxOEVOSFJRTS4u\">H\u00c9R<\/a><\/p>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-group is-layout-flow wp-container-core-group-is-layout-7 wp-block-group-is-layout-flow\" style=\"padding-right:0;padding-left:0\">\n<div class=\"wp-block-group is-layout-flow wp-block-group-is-layout-flow\">\n<div class=\"wp-block-group is-content-justification-center is-nowrap is-layout-flex wp-container-core-group-is-layout-5 wp-block-group-is-layout-flex\" style=\"padding-right:0;padding-left:0\">\n<div class=\"wp-block-group is-vertical is-content-justification-center is-layout-flex wp-container-core-group-is-layout-1 wp-block-group-is-layout-flex\">\n<figure class=\"wp-block-image size-full is-resized is-style-rounded\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"480\" height=\"640\" src=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/jsm-1.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-2031\" style=\"aspect-ratio:3\/4;object-fit:cover;width:400px\" srcset=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/jsm-1.jpg 480w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/jsm-1-225x300.jpg 225w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/jsm-1-9x12.jpg 9w\" sizes=\"auto, (max-width: 480px) 100vw, 480px\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">J\u00f3hann Skagfj\u00f6r\u00f0 Magn\u00fasson<\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-group is-vertical is-content-justification-center is-layout-flex wp-container-core-group-is-layout-2 wp-block-group-is-layout-flex\">\n<figure class=\"wp-block-image alignleft is-resized is-style-rounded\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"995\" height=\"1065\" src=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Lilja.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-1988\" style=\"aspect-ratio:3\/4;object-fit:cover;width:400px\" srcset=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Lilja.jpg 995w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Lilja-280x300.jpg 280w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Lilja-957x1024.jpg 957w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Lilja-768x822.jpg 768w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Lilja-11x12.jpg 11w\" sizes=\"auto, (max-width: 995px) 100vw, 995px\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Lilja D\u00f6gg Gylfad\u00f3ttir<\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-group is-vertical is-content-justification-center is-layout-flex wp-container-core-group-is-layout-3 wp-block-group-is-layout-flex\">\n<figure class=\"wp-block-image size-full is-resized is-style-rounded\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"750\" height=\"1334\" src=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Astros-Mynd-002-2.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-2033\" style=\"aspect-ratio:3\/4;object-fit:cover;width:400px\" srcset=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Astros-Mynd-002-2.jpg 750w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Astros-Mynd-002-2-169x300.jpg 169w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Astros-Mynd-002-2-576x1024.jpg 576w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/Astros-Mynd-002-2-7x12.jpg 7w\" sizes=\"auto, (max-width: 750px) 100vw, 750px\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">\u00c1str\u00f3s Sigur\u00f0ard\u00f3ttir<\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-group is-vertical is-content-justification-center is-layout-flex wp-container-core-group-is-layout-4 wp-block-group-is-layout-flex\">\n<figure class=\"wp-block-image alignleft size-large is-resized is-style-rounded\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"683\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/LP_5605_Hi-res-1-683x1024.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-2029\" style=\"aspect-ratio:3\/4;object-fit:cover;width:400px\" srcset=\"https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/LP_5605_Hi-res-1-683x1024.jpg 683w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/LP_5605_Hi-res-1-200x300.jpg 200w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/LP_5605_Hi-res-1-768x1152.jpg 768w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/LP_5605_Hi-res-1-1024x1536.jpg 1024w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/LP_5605_Hi-res-1-1365x2048.jpg 1365w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/LP_5605_Hi-res-1-8x12.jpg 8w, https:\/\/northconsulting.is\/wp-content\/uploads\/2025\/01\/LP_5605_Hi-res-1-scaled.jpg 1707w\" sizes=\"auto, (max-width: 683px) 100vw, 683px\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">El\u00edn Matthildur Kristinsd\u00f3ttir<\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n\n\n\n<p><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>L\u00edf sem er l\u00edfsins vir\u00f0i n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 fr\u00e1 sj\u00f3narh\u00f3li fj\u00f6gurra \u00fe\u00e1tttakenda Fr\u00e1 jan\u00faar til okt\u00f3ber 2024 t\u00f3ku 12 kennarar og sk\u00f3lastj\u00f3rnendur \u00ed grunnsk\u00f3lum v\u00ed\u00f0s vegar um landi\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed tilraunakennslu \u00e1 [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":1,"featured_media":1998,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"inline_featured_image":false,"_EventAllDay":false,"_EventTimezone":"","_EventStartDate":"","_EventEndDate":"","_EventStartDateUTC":"","_EventEndDateUTC":"","_EventShowMap":false,"_EventShowMapLink":false,"_EventURL":"","_EventCost":"","_EventCostDescription":"","_EventCurrencySymbol":"","_EventCurrencyCode":"","_EventCurrencyPosition":"","_EventDateTimeSeparator":"","_EventTimeRangeSeparator":"","_EventOrganizerID":[],"_EventVenueID":[],"_OrganizerEmail":"","_OrganizerPhone":"","_OrganizerWebsite":"","_VenueAddress":"","_VenueCity":"","_VenueCountry":"","_VenueProvince":"","_VenueState":"","_VenueZip":"","_VenuePhone":"","_VenueURL":"","_VenueStateProvince":"","_VenueLat":"","_VenueLng":"","_VenueShowMap":false,"_VenueShowMapLink":false,"_themeisle_gutenberg_block_has_review":false,"footnotes":""},"categories":[11],"tags":[],"class_list":["post-1985","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fraedsla"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/northconsulting.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1985","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/northconsulting.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/northconsulting.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/northconsulting.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/northconsulting.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1985"}],"version-history":[{"count":32,"href":"https:\/\/northconsulting.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1985\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2050,"href":"https:\/\/northconsulting.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1985\/revisions\/2050"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/northconsulting.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/1998"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/northconsulting.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1985"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/northconsulting.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1985"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/northconsulting.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1985"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}